29.3.2020 | 17:32
Gamlar vísur nr. 13
Jćja ţá ćtla ég ađ halda áfram međ ţessar gömlu vísur sem ég fann í dánabúi föđurs míns:
138. Kristján Jónsson kveđur ţannig:
Sćlt er ađ elska og elska heitt
af ungri silkihlíđ.
En hvađ fćr framar af sjár leitt
armćđu, böl og stríđ.
139. Lausavísur:
Sela dala bála bil
baldur vildi skjala.
Vjela skal viđ ála yl
aldrei hildi fala.
140.
Ţvingar angur hringaheiđ
hungriđ stranga spennir
syngur anga löngum leiđ
lungun ganga í henni.
141.
Mörgum manni bjargar björg,
björgin hressir alla.
Eru ađ sćkja björg í björg
björgulegt er valla.
142.
Sumarling og sumarţrá
sumar vakna lćtur,
sumar í auga sumar í brá
sumar viđ hjartarćtur.
143. Mađur var á ferđ undir fjallinu "Strútur" sem er nálćgt Kalmannstungu.
Lyngs viđ byng á grćnni grund
glyngra og syng viđ stútin
ţvinga jeg styngan hófa hrund
hringin í kringum "Stúrinn"
144.
Vondra róg ei varast má
varúđ ţó menn beiti,
mörg er Gróa málug á
mannorđsţjófa Leiti.
145.
Veröld fláa sýnir sig,
sú mjer spáir hörđu,
flestöll stráin stinga mig
stór og smá á jörđu.
146.
Ţorri bjó oss ţröngan skó
ţennan snjóa vetur
en hún góa ćtlar ţó
ađ oss róa betur.
147.
Nú er hlátur nývakinn
nú er grátur tregur
nú er jeg kátur nafni minn
nú er jeg mátulegur.
148.
Svona vil jeg sjá hana,
svona horfa á hana
fríđa vil jeg fá hana
hjá föđurnum sem á hana.
149.
Ţú ert Manga ţćgileg
ţar um ganga sögur,
ć mig langar ađ eiga ţig,
eikin spangafögur.
150. Bragaháttur stuđlafall.
Oddur blauđi óttast rauđan dauđan
hann er versta um hauđur gauđ,
hann er mesta skauđ í nauđ.
151.
Fyr skal randa rjóđum brandur granda
en ađ fjandinn flái sá
fái sanda brái gná.
Bragaháttur stikluvik.
152.
Hjalla fyllir fenna dý
falla vill ei kári,
valla grillir Enniđ í
alla hrellir menn viđ ţví.
153. Bragaháttur "Útkast"
Sigurđur á Barđi barđi
bogin Steina,
inn viđ hurđ sig Varđi varđi
verkum meina.
154. Símon Dalaskáld hefur ort vísu ţessa.
Skáld í landi frjáls og frí,
forđast andar grandiđ,
hjónaband ei ţolir ţví
ţetta vonda standiđ.
------------------------
Komiđ í dag.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)