Föstudagsgrín

Fimm fimmaurar um homma: 1. Gafst upp á endanum. 2. Gat ekki rassgat. 3. Dróst afturúr. 4. Eilíf afturför hjá honum. 5. Sá hélt áfram því hann gat ekki hugsað sér að snúa aftur. 

Næst eru það iðnaðarmenn t.d. Trésmiðurinn sem varð að hætta því hann rak við í lógan á sér!

Í Edinbort hafði þjófur brotið rúðu í sýningarglugga skartgripaverslunar og stolið dýrgripum fyrir mikið fé. Þjófurinn náðist daginn eftir þegar hann kom í verslunina til þess að ná í hamarinn sem hann hafði brotið rúðuna með!

Hvaða hávaði er þetta í herberginu hér við hliðina? Þetta er bara hún Sigga gamla að tala við sjálfa sig. Af hverju hefur hún svona hátt? Æ, hún heyrir svo illa kerlingargreyið!

Veistu hvað stendur á legsteini opinbers starfsmanns? Nei. Hér hvílir hann áfram!

Jón Hjaltalín skólastjóri á Möðruvöllum var eitt sinn að láta nemanda þýða úr dönsku og kom þar fyrir málshátturinn: Af skade bliver man klog. Nemandinn þýddi: Af skötu verður maður klókur. Þá sagði Hjaltalín: Jahá, Mikið þyrfir þú að éta af henni!

Laufey Valdimarsdóttir var eitt sinn á ferð í bíl með nokkrum kvenréttindakonum. Þær töluðu margt um sín áhugamál, og þótti bílstjóranum þær halla allmjög á karlmennina. Hann sagði því: En guð skapaði þó Adam á undan Evu. Já, svaraði Laufey, en það var bara af því, að hann var að æfa sig!

Prestur nokkur var að hugga ekkju, sem nýlega hafði misst mann sinn, og sagði meðal annars, að hann væri nú kominn til betri heimkynna. Þá segir konan með þykkjusvip: Á þetta að vera sneið til mín!

Listmálari hér í bænum var að sýna gesti sínum nokkur málverk eftir sig, og þar á meðal var andlitsmynd af stúlku. Þegar gesturinn hafði athugað myndina nokkra stund, sagði hann: Mér sýnist myndin prýðilega gerð, en hvers vegna valdir þú svona herfilega ljótan kvenmann til að mála? Hún er systir mín, sagði málarinn. Æ, fyrirgefðu, sagði þá gesturinn. Ef ég hefði athugað myndina betur, þá hefði ég getað séð, hvað þið eruð lík.

Jæja, þá er það K. N.: Ekki ný saga:

Hjá konum bæði og körlum 

hann kærleiksylinn fann,

elskaður og virtur af ölllum,

sem ekki þekktu hann.

---------

Stirðnar tunga og dvínar dáð,

dregst að nóttin kalda,

horfið er allt, sem hef ég þráð,

hvers á ég að gjalda?

Stefið margt, sem frá mér flaug

fyrr til ungra svanna,

gref ég upp úr öskuhaug 

endurminninganna. 

------

Mig langar stundum að lyfta mér ögn

og lífga með kvæðum og söng.

Mér leiðist hin eilífa þunglyndis þögn,

því þá urðu kvöldin svo löng.

-------

Jæja, þá er það "Gráa svæðið": Það voru prestkosningar og þótti einn presturinn mikill kvennabósi sem ekki öllum líkaði. Þá var þessi til:

Heldur réna fylgið fer,

flestir gegn þér rísa,

en ef þú skærir undan þér,

ættirðu kosningu vísa.

----

Er við sáum áfram líða 

allan þennan meyjafans,

þyngdarlögum hætti að hlýða

hluti nokkur líkamans.

----

Heldur fitlar faglega,

fer með tittling haglega,

hún Gunna litla, laglega

sem lostinn kitlar daglega. 

-------------

Svo hin góða sauðfjárrækt

sveitir megi prýða,

þarf að kenna hægt og hægt

hrútunum að ríða. 

Jæja, þá er þetta komið núna, en Jóhann bað mig að taka við föstudagsgríninu og vonandi var þetta í lagi. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Átti að vera; Rak við í lófan á sér. 

Sigurður I B Guðmundsson, 23.4.2021 kl. 00:41

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Sigurður

Það er vert að þakka Jóhanni fyrir föstudagsgrínið og bjóða þig velkominn með þann pakka. Reyndar skiptir svo sem ekki miklu hvor ykkar er nefndur fyrir því, enda oftar en ekki sem þú hefur bætt skemmtilega við pistla Jóhanns.

Fyrir mestu er að við hin fáum okkar föstudagsgrín.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 23.4.2021 kl. 05:59

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú klikkar ekki fremur en fyrri daginn. laughing  Ég vissi það að föstudagsgrínið yrði í góðum höndum.  Það kom einu sinni fyrir mig að ég gleymdi mér einn föstudaginn og setti ekki inn föstudagsgrínið og það var hringt í mig og ég fékk alveg að heyra það hversu stóra synd ég hafði drýgt.  Vonandi lendir þú ekki í þessu.  Gangi þér sem best.....

Jóhann Elíasson, 23.4.2021 kl. 09:00

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Snilld. Alltaf fylgst med Johanni og mikid

gott ad halda thessu afram.laughinglaughinglaughing

Sigurður Kristján Hjaltested, 23.4.2021 kl. 09:47

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Kem svo með brandara að hætti Jóhanns á föstudaginn kemur. 

Sigurður I B Guðmundsson, 23.4.2021 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband