Breytingar og gleði.

Við hjónin voru að flytja frá Mosfellsbæ til Reykjavíkur. Salan og kaup gengu svo hratt fyrir sig að við ákváðum að skreppa til útlanda í afslöppum og fórum að sjálfsögðu með Ferðaskrifstofu eldri borgara og núna til Madeira í Portúgal í hálfan mánuð. Madeira er afskaplega falleg eyja og hreinleg. Til dæmis sáum við ekkert veggjakrot né maura og enga kakkalakka. Maturinn fyrsta flokks eins og öll þjónusta. Ekki skemmdi farastjórinn Kristinn Blöndal fyrir. Frábær farastjóri eins og allir farastjórar hjá þessar mögnuðu ferðaskrifstofu. Og svo rúsínan í pylsuendanum. Ég var við nám í Barcelona 1970 og hitta þá Íslending sem var líka í námi þar þó allt öðru en ég. Við lentum í ýmsum ævintýrum og höfum svo ekki sést síðan þá. En í þessari ferð hittumst við aftur eftir 55ára aðskilnað og voru mikil fagnarlæti hjá okkur og gamlir tímar rifjaðir upp.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gaman að lesa svona jákvæða færslu innan um allan þennan bölmóð sem er í "fréttum" og annarri umfjöllun í dag.  Það er gott að þið hjónin voruð ánægð með ferðina og gott ef fleiri væru svona jákvæðir eins og þú þá liði mörgum mun betur......

Jóhann Elíasson, 25.3.2025 kl. 10:46

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þakka þér fyrir það Jóhann.

Sigurður I B Guðmundsson, 25.3.2025 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og þrettán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband