16.5.2025 | 10:57
Föstudagsgrín
Ung kona í Reykjavík átti von á fyrsta barni sínu. Hún spurði fæðingarlækninn hvort eiginmaður sinn mætti vera viðstaddur fæðinguna svo sem nú er alltítt. Já, ég er þeirra skoðunar svaraði læknirinn, að faðir barnsins eigi einnig að vera viðstaddur fæðingu þess. Það finnst mér nú ekki koma til greina, sagði þá stúlkan. Honum og mannininum mínum kemur ekki allt of vel saman.
---------- Svo þessar vísur----------
Frjósemispillan Viagra
í landi elda og ísa
Er nánast hver kvenmaður skvísa
Sem áður var fimur
Hann fæst ekki til þess að rísa.
--
Fyrir fyrrum ungmennin gröðu
sem léku sér oft úti í hlöðu.
Nú komin er pilla
til aðstoðar Lilla
að ná sér í upprétta stöðu.
--
Með auman og ónýtan tilla
sem með réttu má kalla Lilla
Nú þarf ekki að bíða
bara að fá sér að......
Hún er góð þessi dásemdar pilla.
---
Verð erlendis næstu tvo föstudaga sem kemur bara í ljós hvort ég haldi áfram:
Athugasemdir
Góður Sigurður......
Jóhann Elíasson, 16.5.2025 kl. 11:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning