Færsluflokkur: Bloggar

Kína

Ég sá í fréttunum áðan að Ólafur forseti og frú eru stödd í Kína. Vona að þau heimsæki íslensku lakkrísgerðina sem átti að sigra heiminn og mikið húllumhæ var þegar hún var opnuð á sínum tíma. En þarna voru íslendingar í útrás með íslenskt hugvit. Hefur einhver fréttamaður kannað hvað varð um þessa verksmiðju?

LÍÚ

Til hamingju LÍÚ. Nú hafið þið sannað mátt ykkar og tekist að snúa "hreinni og tærri" vinstristjórn á ykkar band.

Heppinn Jón Ásgeir

Mikið er hann Jón Ágeir heppinn að eiga svona ríka eiginkonu. Hún borgaði 1000 millur til að eignast 365 miðla og svo 1300 millur til að eignast Manhattan íbúðirnar. Á meðan á Jón Ásgeir bara fyrir diet coke. En hvaðan kemur allur þessi auður hennar?? Kona með yfirveðsett Hótel!!! Spyr sá sem ekki veit.

Hver borgar brúsann?

Ég er einn af mörgum sem fæ mér stundum göngutúr út á Laugarnestanga. Þar hef ég fylgds með framkvæmdagleði Hrafns Gunnlaugssonar. Ekki ætla ég að leggja mat á hvort þarna sé um að ræða list eða drast sem hann hefur sankað að sér og komið fyrir á lóð borgarinnar. Núna er borgin að taka þessi "verk" og laga lóðina. Til þess þarf stórvirkar vinnuvélar og mannskap. Nú vil ég fá að vita hver borgar þessar hreinsunaraðgerðir? Eru það skattborgarar í Reykjavík eða fær Hrafn Gunnlaugsson reikninginn? Spyr sá sem ekki veit.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband