Frábær þjónusta og dekurferð.

Við fórum til Tékklands á heilsuhótel á vegum Ferðaskrifstofu Eldri Borgara en sú ferðaskrifstofa hefur gert samning við Bag Drop og þvílíkt og annað eins. Ferðatöskur okkar sóttar deginum áður en við fórum og brottfaraskrá sent í síman okkar og við þurftum ekki að bíða í neinni biðröð i Leifstöð heldur fórum bara beint þar sem öryggishliðið er og svo tókum við töskurnar á komustað í Tékklandi. Ég mæli með þessari ferð á þetta heilsuhótel þar sem var boðið upp á svo margt að ég fer ekki í að fjalla um allt sem var innifalið og hvað var hægt að kaupa sem var fjölmargt og mjög ódýrt. Eini gallinn var að starfsfólkið talaði litla ensku en frábær farastjóri Sigrún Sigurðardóttir bjargaði því með sinni snilld. Frábær og ódýr dekurferð eins og alltaf hjá þessari ferðaskrifstofu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mikið var gaman að þið hjónin nutuð ferðarinnar.  Það er líka alveg greinilegt að þú ert með jákvæðari mönnum og það er ekki ónýtt að hafa svona menn í hóp.  Og vertu velkominn til baka, nú getur maður farið að gera því skóna að vorið sé að koma og þá verður léttara yfir okkur öllum..

Jóhann Elíasson, 5.3.2024 kl. 15:05

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þakka þér fyrir hlýleg orð í minn garð. 

Sigurður I B Guðmundsson, 6.3.2024 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband