Margt skrýtið í kýrhausnum!

Auglýsing hjá Norðurál sagði að það vantaði fræðslustjóra og starfið hentaði öllum kynjum. Veit vel að ég er eldri borgari en kynin voru bara tvö hér áðurfyrr!!

Svo eru það blómabændur sem auglýsa að blómin þeirra geri kraftaverk. Nei, og aftur nei. Þau gera engin kraftaverk en þau geta glatt fólk. (Jesús gerði kraftaverk var sagt hér í denn).

Besta deildin! Bannað er að nota orðið BESTA í auglýsingum (nema bæjarins bestur fengu undanþágu) en nú er heil deild í knattspyrnu sögð sú besta. Er þá handboltadeildin sú næst besta og körfuboltadeild sú þriðja besta og svo koll að kolli. Hvaða rugl er þetta!

Bríó auglýsir alvöru bjór! Og Egils Gull eitthvað svipað. Bjórauglýsingar eru bannaðar hélt ég þó svo ég sé ekki endilega sammála því.

Og að lokum ekki benda lögreglu á hugsanlegan brotamann ef hann er ekki með hvítt skinn. Því þá ert þú væntanlega rasisti!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

En vegna þess að auglýsingalög eru augljóslega brotin, eins og þú bendir réttilega á, verður þá enginn látinn sæta ábyrgð á því eða verður þetta má bara látið "lognast" útaf í rólegheitum???????

Jóhann Elíasson, 6.5.2022 kl. 12:12

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Við búum á Íslandi ekki satt!!

Sigurður I B Guðmundsson, 6.5.2022 kl. 16:42

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú satt er það, hér virðist það vera að "vissir aðilar" þurfa ekki þurfa að fara að lögum og geta, að því er virðist, gert það sem þeim sýnis án þess að það hafi nokkrar afleiðingar.....

Jóhann Elíasson, 6.5.2022 kl. 18:37

4 identicon

Síðasta versið er alveg gulls ígildi og svo satt.Gef þér tíu fyrir þetta Sigurður.

Björn. (IP-tala skráð) 11.5.2022 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband