Besti helvítis bjórinn gerir kraftaverk.

Er enn að bíða eftir svari við fyrirspurn minni um "Besta deildin". Bætti nú við að blómabændur fullyrða að blómin þeirra geri kraftaverk. Nýasta auglýsingin sem hljómar ekki vel í mín eyru er: "Helvítis kokkarnir". Það má virðist allt í dag til að fanga athygli. Svona gæti nútíma auglýsing hljómað: "Helvítis besti bjórinn gerir kraftaverk" eða Besti bjórinn gerir helvítis kraftaverk. Neytendastofa hefur svo mikið að gera að ég verð víst bara að bíða og bíða og bíða...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góður að vanda.  En er þessi helvítis bið ekki farin að "pirra" þig mikið??????

Jóhann Elíasson, 14.6.2022 kl. 07:09

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Bíð reyndar spenntur eftir helvítisbjórnum sem gerir kraftaverk! (bragðið er ekki stórmál, þarf ekki að vera sá besti)! En ég er giftur maður og vanur að bíða og bíða. 

Sigurður I B Guðmundsson, 14.6.2022 kl. 09:17

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður en því miður held ég að þú fáir ALDREI almennilegt svar varðandi fyrirspurn þína um "Bestu Deildina", það er ekki venjan hjá þessu liði að svara nokkrum sköpuðum hlut af neinu viti.......

Jóhann Elíasson, 14.6.2022 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband